Skuggamyndir frá Býzans
Ásgeir Ásgeirsson saz, búsúkí, Haukur Gröndal klarinett, Þorgrímur Jónsson kontrabassi og Eric Quick slagverk
Árlega er haldin alþjóðleg tónlistarhátíð á Siglufirði sem hefur það að markmiði að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og þjóðarbrota. Á hátíðinni hefur tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt auk þess sem íslensk þjóðlög sitja ætíð í öndvegi. Þjóðlagahátíðin stendur frá miðvikudegi til sunnudags fyrstu heilu vikuna í júlí ár hvert. Auk tónleika er boðið upp á námskeið, bæði í tónlist og handverki, gömlu og nýju. Þá er börnum þátttakenda boðið upp á ókeypis námskeið í leiklist og tónlist.