Kaffi Rauðka er pizzastaður, bar, tónleikastaður og frábær veislusalur staðsettur í hjarta Siglufjarðar við smábátahöfnina. Við gerum eldbakaðar pizzur úr lífrænu hveiti með fyrsta flokks áleggi.
Á sumrin er hægt að spila strandblak, minigolf og risaskák á útisvæði Rauðku. Á Kaffi Rauðku eru reglulega tónleikar, viðburðir, veislur og ráðstefnur allt árið um kring. Í norðurenda staðarins er glæsilegur veislu- og tónleikasalur. Á efri hæðinni er einnig notarlegur salur sem hentar fyrir minni fundi eða aðrar samkomur.